Brautskráning vor 2025

Rektor ásamt dúx og semidúx
Rektor ásamt dúx og semidúx

Brautskráðir voru 130 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af 8 námsbrautum. Flestir útskrifuðust af opinni braut eða 63 nemendur, 21 af náttúrufræðibraut, 8 af félagsfræðabraut, 2 af málabraut, 3 af listdansbraut, 28 nemendur af IB-braut og 3 af fjölnámsbraut. Alls voru 8 nemendur brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Yi Ou Li, stúdent af náttúrufræðibraut, með 9,72 í meðaleinkunn. Yi Ou Li hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í líffræði. Semidúx var Anna Valgerður Káradóttir sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með 9,68 í meðaleinkunn. Anna Valgerður hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í líffræði og spænsku.

Fyrir hönd nýstúdenta tóku til máls Daði Víðisson og Fjóla Gerður Gunnarsdóttir og fyrir hönd 50 ára stúdenta flutti Dögg Pálsdóttir ávarp.  Nýstúdentinn Baldur Kári Malsch Atlason flutti verkið Clair de lune á píanó og nýstúdentar úr kórnum sungu verkið Gömul vísa um vorið eftir Gunntein Ólafsson, ljóðið eftir Stein Steinarr.

Athöfninni var svo slitið með samsöng undir forystu kórstjórans Gísla Magna sem stjórnaði kórnum að þessu sinni, í fjarveru Hreiðar Inga Þorsteinssonar.