Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Við munum fylgjast með og láta ykkur vita bæði hér á heimasíðunni og í gegnum tölvupóst hver viðbrögðin verða, ekki seinna en kl. 6:45 á fimmtudagsmorgun.
Ef ekki hefur orðið af óveðri eða ófærð verður skólahald óbreytt.
Ef veðurspá eða ófærð gengur eftir færist skólahald yfir á Innu og þar gefa kennarar fyrirmæli um hvernig nemendur geta best varið tíma sínum í viðkomandi áfanga. Ekki er endilega gert ráð fyrir netkennslu, hver kennari ákveður hvernig tími nemenda nýtist sem best. Kennarar bera ábyrgð á að setja tilkynningu inn á Innu og nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með. Annað starfsfólk vinnur fjarvinnu eftir því sem við á og mögulegt er.
Nánar má lesa um verklagið á heimasíðunni