Afreksnemar úr MH fengu styrk úr afreks- og hvatningasjóði HÍ

Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær.  Við erum gríðarlega stolt af okkar fólki en átta af styrkhöfunum stunduðu nám við MH.

Þetta eru: Dunja Sól Markovic, Hallsteinn Skorri Haraldsson, Herdís Freyja Friðriksdóttir, Lilja Rut Halldórsdóttir, Sóley Júka Magnúsd. Kuwahara, Sylvía Kristín Ívarsdóttir, Sölvi Freyr Valdimarsson og Valgerður Birna Magnúsdóttir. 

https://hi.is/frettir/taeplega_30_afreksnemar_taka_vid_namsstyrkjum_i_haskola_islands