29 verk bárust í tónverkakeppnina

Afmælisnefnd MH, í samvinnu við Beneventumsjóð, stendur fyrir samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur gátu valið úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverkanna rann út 14. ágúst og ótrúlegt en satt þá bárust 29 verk í keppnina. Nú bíður dómnefndar að njóta þess að fara yfir öll innsendu verkin og úrslit verða tilkynnt laugardaginn 26. september á afmælishátíð skólans. Takk kærlega fyrir frábærar undirtektir tónskáld!