Covid-19 haust 2021

Hér setjum við inn upplýsingar tengdar sóttvörnum og Covid-19 í MH, fyrir haustið 2021.

Til upplýsingar vegna prófahalds í framhaldsskólum.

Með hliðsjón af undanþágu sem veitt hefur verið til háskólastigsins hafa heilbrigðisyfirvöld veitt framhaldsskólum leyfi til þess að 100 nemendur geti verið saman í rými á prófatímabilinu sem framundan er. Sóttvarnalæknir mælir með því að hugað sé vel að loftgæðum, loftað út og gluggar og dyr hafðar opnar eins og hægt er.

_________________________________

Reglur sem gilda í MH frá og með 15. nóvember 2021 - rules in effect in MH from November 15th.

Reglugerð heilbrigðisráðherra frá 12.11.2021 varðandi sóttvarnir 

Reglur sem gilda í MH frá og með 8.nóvember 2021 - rules in effect in MH from November 8th 2021

Reglur sem gilda í MH frá og með 11.október 2021 - rules in effect in MH from 11th of October 2021

_____________________________________

Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi haustið 2021 frá Mennta og menningarmálaráðuneytinu.

Virðum reglurnar og höfum einstaklingsbundnar sóttvarnir í fyrirrúmi, þ.e., handþvottur og sótthreinsun eru það allra mikilvægasta. Ef nemendur finna til einkenna tengdum COVID þá eiga þeir að vera heima og tilkynna veikindi í gegnum Innu. Nánari upplýsingar um verkferla vegna smits og gruns um smit má finna hér fyrir neðan.

__________________________________

Please respect the rules and prioritize individual disease prevention. Remember that if you feel any symptoms of sickness, you are supposed to report sick in Inna. Further information about COVID work procedure can be found here below.

 

Veikindaskráningar

Við hvetjum nemendur til að tilkynna veikindi í Innu, hvort sem forráðamenn gera það eða þeir gera það sjálfir (18 ára og eldri) og setja í athugasemd hver veikindin eru. Við mælumst til þess að nemendur komi ekki veikir í skólann og á meðan þetta ástand varir setjum við veikindi á alla tilkynnta veikindadaga. Fjarvistir (F) standa en veikindi (V) koma á móti.

Verkferlar vegna Covid-19 (English version below)

Smit eða grunur um smit - nemendur

Tilkynning um sóttkví eða einangrun - nemendur

Covid-19 - Work procedure

Work procedure – Infection or suspicion of infection - students

Work procedure - Notification of quarantine or isolation - students

Work procedure – Infection or suspicion of infection - staff

______________________________________

How to register students absent/sick in INNA

 

________________

 

Síðast uppfært: 24. nóvember 2021