Fyrirkomulag stundatöflu:
Hver fimm eininga áfangi sem kenndur er í 4 kennslutímum fellur í einn stokk (A/B/C/D/E/F/G/H). Hér er skýringarmynd af stokkakerfinu.
Leiðbeiningar fyrir Innu (nemendaumsjónarkerfi framhaldsskóla):
Fyrst er smellt á Inna sem er einn af flýtihnöppunum á forsíðu. Til að komast inn á Innu þarf að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Nemendur sem eru með núll núll kennitölu ( hafa ekki búið áður á Íslandi) geta komist inn á Innu með kennitölu og lykilorði en þeir þurfa fyrst að fá lykilorðið hjá konrektor.
Í Innu er flipi sem heitir Aðstoð og þar er hægt að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi notkun Innu og breytingar á ýmsum stillingum.
Hér eru upplýsingar til viðbótar við það sem er nú þegar í Innu:
Til nýnema frá námsráðgjöfum
Ýmsar upplýsingar