Í MH geta nemendur leigt sér gulan skáp til eins skólaárs í senn. Þeir eru staðsettir undir stiganum frá Matgarði fyrir framan stofur 41 - 43. Til að fá gulan skáp þarf að sækja um það hér á þessu eyðublaði og verður lyklum að skápunum úthlutað á bókasafninu í byrjun annar.
Leiga á gulum skáp kostar 2000 kr fyrir skólaárið. Greitt er með millifærslu.
Nemendur munu fá svarbréf þegar þeir hafa fengið úthlutað gulum skáp og í kjölfarið koma þeir á bókasafnið þar sem skápalyklar eru afhentir gegn kvittun um greiðslu á skápagjaldi.
Í byrjun maí eiga nemendur að tæma skápana og þeir eru hreinsaðir.
Ef nemandi skilar ekki lykli í lok vorannar kemur greiðsluseðill upp á 5000 kr í heimabanka þess sem er skráður á Innu, sem sekt fyrir að skila ekki lykli.