Nemendur athugið að allar einkunnir fyrir próf sem tekin voru á prófatíma og verkefni sem skilað var eftir að kennslu lauk, eru vinnueinkunnir þar til búið er að tilkynna að búið sé að fara yfir þær. Einkunn telst ekki fullkomin fyrr en við höfum tilkynnt að svo sé. Það verður í gert í síðasta lagi að morgni staðfestingardags og munu allir fá póst þess efnis að búið sé að opna fyrir einkunnir.
Þriðjudagurinn 19. desember er staðfestingardagur og prófsýning:
Nýnemar haustsins 2023 hitta lífsleiknikennara sína í eftirfarandi stofum kl. 10:00.
Stofur, þar sem prófin verða sýnd, verða auglýstar síðar
Nýnemar haustsins 2022 hitta umsjónarkennara sína eða námstjóra á Miðgarði eða skrifstofu námstjóra milli 10:00 og 10:45. Aðrir nemendur geta einnig mætt og hitt áfangastjóra eða námstjóra á sama tíma.
Prófsýning í fagstofum er kl. 11:15-12:15.
Staðfestingu vals þarf að vera lokið kl. 14:00.