23. júní
Eindagi skólagjalda nemenda sem eru að koma úr öðrum framhaldsskóla er 23. júní
23. júní - 5. ágúst
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 23. júní til og með 5. ágúst. Gleðilegt sumar
6. júlí
Eindagi skólagjalda nýnema sem eru að koma beint úr 10. bekk er 6. júlí.
Greiðsluseðill birtist í heimabanka foreldris/forsjáraðila, fyrir greiðslu skólagjalda haustannar sem eru 15.000 kr. (6000 kr. innritunargjald og 9000 kr. efnis-, pappírs- og tölvugjald). Greiðsluseðillinn birtist hjá þeim forsjáraðila sem eldri er.
Gjalddagi er 22. júní 2026 en eftir eindaga sem er 6. júlí 2026 leggst á álag kr. 1500 (sjá https://www.mh.is/is/skolinn/nemendur-ogforsjaradilar/gjaldskra). Þá fylgir einnig valkvæður greiðsluseðill upp á 5000 kr. frá Nemendafélagi Menntaskólans viðHam rahlíð og 500 kr. valkvæður greiðsluseðill frá foreldrafélagi MH. Engin skylda er að vera í NFMH en við hvetjum ykkur til þess að taka virkan þátt í starfi nemendafélagsins, samhliða því að takast af krafti á við námið. Þau sem eru að fara í myndlist fá greiðsluseðlar vegna efniskostnaðar inn síðar, eftir að önnin hefst.
13.-14. ágúst
Námstjórar verða með viðtalstíma 13. og 14. ágúst milli kl. 10:00 og 14:00. Nýnemar geta komið upp í skóla og hitt þá til að ræða málin. Námstjórar verða einnig til viðtals, eftir kynningarfundinn 17.ágúst
14. ágúst
Afmælisnefnd í samvinnu við Beneventumsjóð hefur ákveðið að efna til samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur velja úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverka er til 14. ágúst.
17. ágúst
Nýnemar haustannar, bæði þau sem eru að koma beint úr grunnskóla og þau sem eru að skipta um framhaldsskóla, eiga að mæta á kynningu 17. ágúst kl. 13:00 þar sem farið verður yfir helstu atriðið varðandi upphaf skólagöngu í MH.
Hér er nýnemabréf sem sent var 22. júní - margt í því á líka við þau sem eru að koma úr öðrum framhaldsskólum
18. ágúst
Þriðjudaginn 18.ágúst eru allir nýnemar boðaðir í skólann til að vera sett inn í rafrænt umhverfi skólans. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og tímasetningu verður auglýst eftir
verslunarmannahelgi.
19. ágúst
Fyrsta kennsludaginn, miðvikudaginn 19. ágúst, verður skólasetning á sal kl. 9:00 og hefst
kennsla í beinu framhaldi af henni.
26. september
Afmælisveisla Menntaskólans við Hamrahlíð
Hægt er að styrkja Beneventumsjóð til góðra verka með því að greiða valgreiðslu sem er í heimabanka mjög margra MH-inga sem útskrifuðust fyrir vorið 2026 og aðrir velunnarar geta lagt inn á reikning Beneventumsjóðs : 0357-22-003364 kt:6505942749.
Við erum ykkur öllum mjög þakklát og stefnum á skemmtilegt og flott afmæli 26. september 2026 þegar skólinn verður 60 ára.