Vali fyrir haustið lýkur um helgina/Course selection ends during the weekend

Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2017 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi og stendur frá 6.-10 mars.  Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans undir:  upplýsingar um val – áfangar og ”leiðbeiningar fyrir val”  til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að velja í fyrsta skipti undir: Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Hér er svo tengill í próftöflur næsta vetrar. Áfangar í boði á haustönn 2017 og  hér eru leiðbeiningar um innslátt á vali. It is high time to select courses for the autmn term 2017 Starting March 6th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday March 10th.  Áfangaframboð /available courses for the next term.  Guide to course selection in IB. Nemendur verða skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem heitir VAL1001.  Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara, birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu.  Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásamt því að sjá til þess að þið ljúkið að velja á réttum tíma.  Sláið sjálf inn valið ykkar.  Þegar þið hafið slegið inn valið sendið þá póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn valið. Auk þess verða námstjórar, náms- og starfsráðgjafar og áfangastjóri til viðtals fyrir alla nemendur um valið.