Þriðji Grænfáni MH í höfn

Verkefni undir merkjum Grænfánans eru unnin í áfanganum Umhverfisfræði, UMHV2AB05.

Við erum stolt af því að segja frá því að í haust fékk skólinn afhentan sinn þriðja Grænfána og var hann dreginn að húni í gær, fimmtudaginn 15. október,  sem hluti af dagskrá umhverfisdaga í skólanum.  

Margs konar verkefni hafa verið unnin í umhverfisvikunni m.a. undir þemunum loftslagsbreytingar, orka, neysla, vatn og náttúruvernd.