Söngstund á sal

Á morgun er dagur íslenskrar tungu og af því tilefni var hringt á sal í dag.  Kór skólans opnaði dagskrána með söngnum Smávinir fagrir, texti eftir Jónas Hallgrímsson, undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar.  Næst sagði Hildur Ýr íslenskukennari nokkur orð um Jónas Hallgrímsson og hans áhuga á íslenskri tungu og benti á að það býr Jónas í okkur öllum.  Nemendur og kennarar sungu svo saman tvö lög við undirleik Sigurkarls Stefánssonar líffræðikennara og Bóasar Valdórssonar Sálfræðings.  Takk fyrir notalega stund.