Skólagjöld vorannar 2023

Í dag voru skólagjöld lögð á alla nemendur sem voru í fullu námí í MH á haustönn og ætla að halda áfram á vorönn. Eindagi skólagjaldanna er 21. desember. Skólagjöldin eru samtals 17500 kr og af þeim eru 5500 kr. valkvæð greiðsla.

Skólagjöld verða lögð á nýja MH-inga seinna í desember og verður eindagi þeirra væntanlega 28. desember. Nánari upplýsingar koma síðar á heimasíðuna og í tölvupósti til nýju MH-inganna okkar.