Nýtt verklag hefur tekið gildi við skráningu veikinda á prófatíma.

Veikindi á prófdegi verður að tilkynna í gegnum Innu, samdægurs fyrir kl.14. Vinsamlegast tilgreinið áfangann í athugasemd.

  • Nemendur eldri en 18 ára skrá þau sjálf í gegnum sína Innu.
  • Nemendur yngri en 18 ára geta ekki sjálfir skráð veikindi í Innu.
    • Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára skrá veikindi í gegnum sína Innu á sama hátt og þau hafa gert í vetur.

Í lok hvers prófdags fer prófstjóri yfir skráðar veikindatilkynningar í Innu, staðfestir þær og veitir upplýsingar um sjúkraprófstíma.  Staðfestingin sést í Innu viðkomandi nemenda og forráðamanna og kemur einnig fram í tölvupósti.

Til viðbótar þurfa nemendur 18 ára og eldri að mæta með læknisvottorð í sjúkraprófið til staðfestingar á veikindum sínum.  Nemendur 18 ára og yngri þurfa þess ekki.

Nemendur sem eru forfallaðir af öðrum orsökum en veikindum þurfa að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 595-5200.