Norðurkjallari í góðum höndum

Norðurkjallari er félagsaðstaða nemenda í MH og þar er hægt að vera og hafa það notalegt í góðra vina hópi. Stjórn NFMH hverju sinni, hefur umsjón með Norðurkjallara og sér um að halda utanum alla starfsemi sem þar fer fram. Í dag skrifuðu Hrefna Tryggvadóttir forseti nemendafélagsins og Steinn rektor undir samning þess efnis.  Nokkrir viðburðir hafa nú þegar litið dagsins ljós í Norðurkjallara  tengdir nýnemaviku og kynningum á félagslífinu.