Nemendur MH komu, sáu og sigruðu á spænskuhátíð

MH kom, sá og sigraði á Spænskuhátíð þann 13. mars sl. Fjórir nemendur MH unnu vikudvöl við háskóla á Spáni (námskeið, gisting og uppihald).

Spænskuhátíð, í samstarfi við Sendiráð Spánar á Íslandi, Félag spænskukennara og Háskóla Íslands, var haldin í Veröld - húsi Vigdísar föstudaginn 13. mars.
Nemendur sem leggja stund á spænsku í framhaldsskólum unnu að þessu sinni með Heimsmarkmið 14, Líf í vatni, og sendu inn myndbönd og veggspjöld. Veitt voru verðlaun fyrir tvö myndbönd og eitt veggspjald. Vinningshafar að þessu sinni voru frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, Verzlunarskóla Íslands og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Verðlaunin veita háskólinn í Alcalá de Henares og háskólinn í Santiago de Compostela: fimm daga tungumálanámskeið, gisting og uppihald.
Við óskum MH nemum innilega til hamingju en það eru þær Anna Milena Mingyi Zou, Emilía Jiyue Hörpudóttir, Telma Karen Jónsdóttir og Þórdís Sif Sindradóttir.