19 MH-ingar í ferðaáfanga í spænsku, heimsóttu hina fögru Granada á Spáni í síðustu viku. Þar skoðuðu þau meðal annars hina undurfögru Alhambra höll, sögufræg hverfi, torg og turna. Þau fóru í fjallaferð og böðuðu sig í ískaldri á og fóru í gönguferðir í náttúrunni. Lokadeginum var varið á strönd og heitum strætum Málaga. Þau voru öll sem eitt skóla og þjóð til sóma, fróðleiksfús og miklir göngugarpar og þakkar hópurinn fjallgönguáfanganum í MH fyrir góðan undirbúning í þeim efnum. Takk fyrir ferðina Andalucía 2025!
Til gamans má geta þess að starfsfólk MH fer á svipaðar slóðir í skólaheimsóknarferð sinni í lok maí.