Birting einkunna og staðfestingardagur

Prófum er lokið og einkunnir munu birtast eftir kl. 16:00 föstudaginn 19. maí. Mánudaginn 22. maí er staðfestingardagur þar sem nemendur geta hitt umsjónarkennarana sína og farið yfir valið fyrir næstu önn. Umsjónarkennarar eru við milli klukkan 10:00-11:00 og má sjá staðsetningu þeirra hér á heimasíðunni.

Námsráðgjafar, námstjórar, áfangastjóri og konrektor verða einnig við, ykkur til aðstoðar. Einhverjir þurfa að gera breytingar miðað við gengi vorannar og hvetjum við ykkur öll til að skoða valið ykkar vel. Prófsýning er milli 11:15 og 12:15 í auglýstum stofum.

Rukkun fyrir skólagjöld mun birtast í heimabanka fimmtudaginn 25. maí eða föstudaginn 26. maí og þá verður eindagi tveimur vikum seinna.