Kór MH 50 ára

Í dag fagnar Kór Menntaskólans við Hamrahlíð 50 ára afmæli. Kórinn kom fyrst saman á þessum degi 18. október 1967. Af þessu tilefni er boðið til fagnaðar  í kvöld í hátíðarsal skólans kl. 20:00 þar sem kórfélagar, vinir og velunnarar kórsins eru boðnir velkomnir. Kórinn er landsþekktur og hafa mörg verk verið samin fyrir kórana tvo og stjórnandann, Þorgerði Ingólfsdóttur.