Íslandsmeistari karla í kata nemandi MH

Íslandsmótið í kata í karate fór fram í íþróttahúsi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Nýr Íslandsmeistari var krýndur í karlaflokki á Íslandsmeistaramóti fullorðinna í kata en það er MH-ingurinn Aron Anh Ky Huynh úr ÍR. Vel gert Aron!