Helga skipuð rektor MH

Hér er Helga í góðra manna hópi
Hér er Helga í góðra manna hópi

Í gær skipaði Inga Sæland Helgu Jóhannsdóttur sem rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga hefur verið settur rektor síðan Steinn Jóhannsson fór í leyfi fyrir rúmu ári síðan. Við þökkum Steini kærlega fyrir hans störf í MH og vitum, af reynslunni, að það er gott að leita til fyrri rektora um ráð. Sjá frétt á vef stjórnarráðsins.

Guðmundur Arnlaugsson hefur leyst Helgu af sem konrektor þetta rúma ár og Alda Kravec hefur leyst hann af sem IB stallari, bæði við góðan orðstír.