Heimsókn frá Hiroshima

Fræðgar- og mikilmenni margskonar hafa komið í MH. Ekkert þeirra hefur þó haft jafnmikil áhrif á nemendur eins og hin 89 ára Teruko Yahata sem hélt áhorfendum hugföngnum þegar hún sagði frá einstakri reynslu sinni síðastliðinn miðvikudag.

Frú Teruko Yahata var heima hjá sér í útjaðri Hiroshima borgar, þá 8 ára gömul, þegar kjarnorkusprengju var varpað á borgina. Heyra mátti saumnál detta þegar hún leiddi nemendur í gegnum sprenginguna, eyðilegginguna og viðbrögðin daginn sem sprengjan féll og dagana þar beint á eftir. Ægileg lífsreynsla hennar lét engan ósnortin og höfðu nemendur ýmsar spurningar í kjölfarið sem hún svaraði af þolinmæði og væntumþykju.

Heimsóknin var öllum viðstöddum ómetanleg og kom okkur í beina tengingu við einn af skeflilegri atburðum síðustu aldar og er stórmerkileg tenging við löngu liðna tíð, merki um að hið liðna er okkur nálægt. Fyrst og fremst er reynslusaga Teruoko Yahata þó ákall um frið og kjarnorkuvopnalausa framtíð.