Hæfileikar á fjölnámsbraut

Anita Ester, Ynja Mist og Snævar Örn voru mjög sátt við fyrsta sætið. Til hamingju öll sem tókuð þát…
Anita Ester, Ynja Mist og Snævar Örn voru mjög sátt við fyrsta sætið. Til hamingju öll sem tókuð þátt.

Í gær 18. apríl tóku nokkrir nemendur á fjölnámsbraut MH þátt í hæfileikakeppni starfsbrauta framhaldsskólanna. Keppnin var haldin í Tækniskólanum og tóku 14 skólar þátt. Meðal dómara var Haffi Haff og tók hann einnig tvö söngatriði. Úrslitin urðu svo þau að MH sigraði - til hamingju MH. Snævar Örn Kristmannson lék á gítar og á meðan gekk glærusýning með myndlistaverkum eftir nokkra nemendur á brautinni. Miklir hæfileikar voru þarna á ferð og listamenn framtíðarinnar að stíga sín fyrstu skref.