Brautskráning Menntaskólans við Hamrahlíð 21. des.

Brautskráðir voru 78 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af fimm námsbrautum. Flestir útskrifuðust af opinni braut eða 49 nemendur, 19 af náttúrufræðibraut, 4 af félagsfræðabraut, 5 af málabraut og 1 af listdansbraut. Fimm nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Elín Katla Henrysdóttir nemandi á náttúrufræðibraut með 9,26 í meðaleinkunn. Elín Katla hlaut auk þess viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í líffræði og efnafræði. Semidúx var Sunna Björg Friðjónsdóttir sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með 9,24 í meðaleinkunn. Ávarp fyrir hönd nýstúdenta fluttu Álfheiður Karlsdóttir og Baldur Steindórsson. Kór skólans undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar gegndi stóru hlutverki og flutti nokkur verk auk þess sem aðrir kórfélagar og nýstúdentar fluttu tónlist.

Upptaka af brautskráningunni er aðgengileg inn á https://livestream.com/accounts/15827392/events/10719542