Íslandsmótið í grjótglímu í klifri fór fram í Hafnarfirði í vikunni . Þar kepptu átta bestu karlarnir og konurnar í krefjandi keppni.
Konurnar riðu á vaðið og eins og við hafði verið búist hafði ríkjandi Íslandsmeistari, Agnes Matthildur Folkmann, talsverða yfirburði. Hún fékk á endanum 84,4 stig fyrir leiðirnar fjórar sem keppt var í. Önnur varð Lukka Mörk Sigurðardóttir með 59,7 stig og þriðja Jenný Þóra Halldórsdóttir með 59,6 stig.
Í karlaflokki voru yfirburðirnir sams konar. Birgir Óli Snorrason fékk 84,6 stig og er Íslandsmeistari. Garðar Logi Björnsson varð annar með 59,7 og Sólon Thorberg Helgason þriðji með 53,9 stig.
Grjótglíma er ein af keppnisgreinum klifurs. Hún fer fram á sérhönnuðum klifurvegg og eru settar upp fjórar mismunandi leiðir á vegginn. Keppendur fá ekki að sjá brautirnar fyrr en komið er að keppni. Þá hafa keppendur 8 mínútur til að skoða brautina og svo keppa þeir einn af öðrum og hafa fjórar mínútur á hverja braut. Stig fást fyrir að ná ákveðnum markmiðum, eða vegvísum, í hverri braut.
Við óskum okkar konu til hamingju með frábæran árangur!
Þessi frétt er tekin af ruv.is