Samtal kynslóða

Þar sem skólahúsnæði MH er á lausu núna um helgina, þegar samtalið veður, býðst MH-ingu og taka samtalið í Verslunarskóla Íslands.  Allir sem skrá sig fá boð um að mæta þangað. Endilega skáið ykkur.

__________________________

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, býður til samtals. Sjá nánar á https://talasaman.is/is 

Bréf frá forsetanum til nemenda - sent 18. september 2026 - English version 

Hér eru helstu upplýsingar af síðunni https://talasaman.is/is 

______

Hér eru nokkrir hlutir sem þú getur gert til að undirbúa þig og hjálpa til við að gera daginn enn betri.

Horfa

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ræddi við RÚV um Samtalið og hvers vegna það skiptir máli á umbrotatímum. Sem verndari verkefnisins þá rammar hún það ótrúlega vel inn, gefðu þér endilega nokkrar mínútur í að horfa:
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-01-samtalid-mikilvaegt-a-umbrotatimum-488559

Bjóða fólkinu þínu með

Samtalið fer fram 10.október og það verður betra með hverjum sem bætist við. Sendu vinum og fjölskyldu hlekkinn og hvettu þau til að skrá sig. Hver gætu haft gott af smá samtali?
https://talasaman.is/

Kíktu á vefinn

Hann vex eftir því sem fleiri skrá sig og svara spurningunum þar.

  • Upplýsingar: Það er búið að svara algengustu spurningum um hvernig þetta fer allt saman fram hérna https://talasaman.is/upplysingar
  • Íslenskast í heimi: svörin við spurningunni „Hvað er það íslenskasta í heimi?“ Lopapeysan trónir á toppnum, en svörin koma skemmtilega á óvart. https://talasaman.is/islenskast
  • Uppáhaldsstaðirnir okkar: staðirnir sem fólk elskar um allt land og ástæðurnar að baki. https://talasaman.is/stadir
  • Áttu eftir að merkja þinn stað eða svara sjálf(ur)? Skráðu þig inn á https://talasaman.is og kláraðu undirbúninginn.

Ertu þjálfi?

Að lokum, þá erum við að leita að fólki sem hefur reynslu af að þjálfa aðra. Hlutverk þjálfa verður að mæta fyrr um morguninn og þjálfa lóðsana fyrir samtalið. Áhugasamir þjálfar geta skráð sig hér: https://talasaman.is/thjalfar

Hlökkum til að tala saman,
Samtal