Kynning á rafrænu umhverfi skólans

Þriðjudaginn 18. ágúst eru allir nýnemar boðaðir í skólann til að vera sett inn í rafrænt umhverfi skólans. Nemendur verða boðaðir í skólann eftir lífsleiknihópum eins og hér segir:

Kl. Stofa Umsjónarkennari
09:00 40 Björn Ólafsson
  41 Alda Kravec - hópur 1
09:30 43 Ásdís Þórólfsdóttir
  45 Anna Eir Guðfinnudóttir
10:00 40  Katharina Gross
  41 Alda Kravec - hópur 2
10:30 43 Trausti Stefánsson
  45 Jóhanna Gunnarsdóttir
11:00 40 Sonja Jóhannsdóttir
  41 Helgi Grímur
11:30 20 Inga Guðrún, Dísa og Sveina

 

Vinsamlegast athugið að skólinn gerir ráð fyrir að nemendur hafi aðgang að fartölvu og geti haft með sér í skólann.

Nemendur þurfa einnig að vera með virk rafræn skilríki. Ef þið eigið ekki rafræn skilríki þá þurfið þið að sækja um þau hjá bankanum ykkar eða símafyrirtæki.

Hér er einnig hlekkur á leiðbeiningar um aðgang að þeim kerfum sem skólinn notar: https://www.mh.is/static/files/Netstjori/h2026-leidbeiningar-fyrir-nynema-haustonn2026.pdf