Föstudaginn 21.ágúst verður stuttur kynningarfundur fyrir nemendur í Afreksíþróttavali, beint eftir skóla eða kl.12:40 í íþróttahúsinu - stóra salnum.
Mikilvægt er að allir nemendur kynni sér vel upplýsingar á meðfylgjandi hlekk: https://www.mh.is/is/namid/skipulag-nams/afreksithrottaval og prenti út samning/eyðublað og skili því til Erlu eða Sonju á kynningarfundinum 21.ágúst.
Við minnum svo á að uppfylla þarf ÖLL eftirfarandi atriði til þess að fá æfingar ykkar metnar til eininga (og fá 5 einingar í AFRE2BA05):
- Skila inn umsóknareyðublaði- kvittað af þjálfara. Skila á kynningarfundi 21.ágúst!
- Þjálfari skilar inn rafrænu meðmælabréfi (þjálfari fær hlekk sendan í tölvupósti)
- Mæta á 95% af æfingunum ykkar
- Mæta á mánaðarlega fræðslu og/eða skila verkefnum þeim tengdum.
Við munum fljótlega senda á ykkur allar dagsetningar fyrir mánaðarlega fræðslu/verkefni og mikilvægt er að taka þær frá.
Kveðja Erla og Sonja