Eindagi skólagjalda nýnema

Eindagi skólagjalda nýnema sem eru að koma beint úr 10. bekk er 6. júlí.

Greiðsluseðill birtist í heimabanka foreldris/forsjáraðila, fyrir greiðslu skólagjalda haustannar sem eru 15.000 kr. (6000 kr. innritunargjald og 9000 kr. efnis-, pappírs- og tölvugjald). Greiðsluseðillinn birtist hjá þeim forsjáraðila sem eldri er.

Gjalddagi er 22. júní 2026 en eftir eindaga sem er 6. júlí 2026 leggst á álag kr. 1500 (sjá https://www.mh.is/is/skolinn/nemendur-ogforsjaradilar/gjaldskra). Þá fylgir einnig valkvæður greiðsluseðill upp á 5000 kr. frá Nemendafélagi Menntaskólans viðHam rahlíð og 500 kr. valkvæður greiðsluseðill frá foreldrafélagi MH. Engin skylda er að vera í NFMH en við hvetjum ykkur til þess að taka virkan þátt í starfi nemendafélagsins, samhliða því að takast af krafti á við námið. Þau sem eru að fara í myndlist fá greiðsluseðlar vegna efniskostnaðar inn síðar, eftir að önnin hefst.