STÆR3EE05 - Stærðfræði 5 - heildun, runur og raðir

Staða áfanga:

Síðasti kjarnaáfangi á náttúrufræðibraut

Stutt lýsing á efni áfangans:

Afleiður vísisfalla, afleiður andhverfu hornafalla, heildun, flatarmál, rúmmál, runur og raðir, summur, diffurjöfnur.

Nokkur lykilhugtök áfangans:

Vísisföll, andhverfur hornafalla, ákveðin og óákveðin heildi, innsetningar-aðferð, liðun í stofnbrot, hlutheildun, flatarmál, rúmmál, runur og raðir, diffurjöfnur.

Námsmat:

Annareinkunn gildir 40% og byggist á kaflaprófum , heimadæmum og ástundun. Lokapróf er skriflegt og gildir 60% . Annareinkunn er ekki reiknuð nema nemandi nái lokaprófinu. Nemandi þarf að ná lokaprófinu til þess að ná áfanganum.