STÆR2BB05 - Stærðfræði 2 - algebra og margliður. Fyrir nemendur á NÁT (og nemendur á öðrum brautum í stað STÆR2BQ05)

Staða áfanga:

Kjarnaáfangi á náttúrufræðibraut.

Stutt lýsing á efni áfangans:

Talnamengi , talnabil, þáttun, reikningur með algebrubrotum , veldi og rætur, annars stigs jöfnur, rótarjöfnur, fleygbogateikning, fallhugtakið, margliður, margliðujöfnur, ójöfnur leystar með hjálp formerkjamyndar, ræð föll, algildi og algildisjöfnur.

Nokkur lykilhugtök áfangans:

Þáttun, algebrubrot, veldareglur, annars stigs formúlan, rótarjafna, fleygbogi, rót, margliðudeiling, ójafna, algildi.

Námsmat:

Annareinkunn gildir 40% og byggist á kaflaprófum, heimadæmum og ástundun. Lokapróf er skriflegt og gildir 60% . Annareinkunn er ekki reiknuð nema nemandi nái lokaprófinu. Nemandi þarf að ná lokaprófinu til þess að ná áfanganum.