SPÆN1BB05 - Spænska 2

Viðfangsefni byrjunaráfangans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er
unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem
fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Orðaforði er
aukinn verulega og ný málfræðiatriði þjálfuð.

Námsmat:
Skrifleg og munnleg verkefni á önninni gilda 50% af lokaeinkunn á móti 50%
lokaprófi.