Fræðilegur áfangi í myndlist
Lýsing
Í áfanganum er farið í vettvangsferðir á ólíka sýningarstaði og fjölbreytt myndlist skoðuð. Nemendur þjálfa sig í virku samtali, listrænni rýni, beitingu hugtaka og listrænnar orðræðu með það að markmiði að dýpka skilning sinn á myndlist sem listgrein og lifandi vettvangi.
Kynntir verða til leiks fjölbreyttir listrænir miðlar og samtímalistamenn, lesnar verða ritaðar greinar um myndlist auk sýningartexta og munu nemendur sjálfir þróa sínar túlkanir í gegnum virk samtöl og skrif. Í gegnum heimsóknir á ólíkar stofnanir og staði fá nemendur yfirlit af myndlistarvettvangi nútímans, allt frá grasrót til ríkisstofnana þar sem nemendur fá að kynnast þeim ólíku störfum sem finna má innan fagsins.
Í áfanganum fara nemendur bæði á sýningar í fylgd kennara en líka á eigin vegum.
Nemandi heldur ferilbók í áfanganum þar sem haldið er utan um rýni, glósur og ígrundanir.
Lykilhugtök áfangans
Myndlist, samtal, listræn orðræða, rýni, upplifun, gagnrýnin hugsun, túlkun, inntak, umræður, skrif, sýningarstaðir, listrænar stofnanir, listamannarekin rými, starfsvettvangur myndlistar, menningarskilningur, framsetning, aðferðir, tækni, listrænir miðlar
Námsmat
Frammistöðumat á vinnuframlagi og þátttöku í vettvangsferðum.
Þátttaka og virkni í tímum er skilyrði. Verkefni áfangans eru skrifleg.