LÍKA2BS01 - Badminton og skvass

Staða áfanga:

Áfanginn er valáfangi í kjarna á öllum brautum.

Stutt lýsing á efni áfangans:

Áfanginn inniheldur eingöngu verklegt nám. Stuðla skal að því að nemendur auki alhliða styrk og úthald. Hreyfing hefur forgang. Lögð er áhersla á alhliða líkamsþjálfun samhliða fjölbreyttum æfingum sem tengjast greinunum. Tækni, leikfræði, reglum og þjálfun þrekþátta.

Nokkur lykilhugtök áfangans:

Hreyfing, þol, styrkur, liðleiki, hraði, snerpa, tækni, leikreglur, leikfræði.

 

Námsmat:

  1. Mæting gildir 70%
  2. Ástundun og kennaraeinkunn 30%.

Nemandi þarf að ná lágmarkseinkunn í báðum námsmatsþáttunum til að standast áfangann.

Við mat á ástundun og kennaraeinkunn er tekið tillit til framfara, framkomu, vinnu og virkni í tímum og hvort nemendur hafa lagt sig fram um að bæta form sitt og líkamsástand.