LEIK3CT05 - Raddbeiting, útvarpsleikhús og talsetning
Stutt lýsing á efni áfangans:
Viðfangsefni áfangans eru lestur hljóðbóka, æfingar og leikur í útvarpsleikverki og talsetning teiknimynda. Nemendur læra og æfa tækni sem hvert verkefni krefst og fá svo að láta reyna á eigin getu í upptökustúdíói ásamt kennara og atvinnuhljóðmanni. Mikil áhersla er lögð á rödd og raddbeitingu og þá mismunandi tækni sem þarf að beita hverju sinni.
Nokkur lykilhugtök áfangans:
Hljóðbók, útvarpsleikhús, teiknimyndir, raddbeiting, framsögn, persónusköpun, samvinna, virðing.
Námsmat:
Frammistöðumat á vinnuframlag og ástundun. Umsagnir um lokaverkefni hverrar lotu. Verkefni er eingöngu verkleg. Áfanginn er verklegur, góð mæting skiptir öllu máli.