KÓRS2BS02 - Kórsöngur að vori

Lýsing á áfanganum:

Í áfanganum er mælst til þess að nemandi læri utanbókar að jafnaði fimmtán kórverk,
þar af að lágmarki tíu íslensk kórverk. Að lokum er hluti kórverka áfangans fluttur á útskrift að vori.
Mælst er til þess að nemandi taki þar þátt.

Námsmat:

Raunmæting 70%
Þátttaka í æfingabúðum að vori utan Reykjavíkur, vorferð 10%*
Þátttaka í viðburði: tónleikar 10%*
Þátttaka í viðburði: Grunnskólakynning - Opið hús í MH 10%

*Ef utanaðkomandi viðburður liggur fyrir tiltekna önn, til að mynda þátttaka í viðburði með
Sinfóníuhjómsveit Íslands, þá gæti þátttaka þess viðburðar vegið annað hvort í stað æfingabúða
eða tónleika. Tilkynnt verður um námsmat hvers áfanga í upphafi annar.

Raddstjórar skrá niður mætingu hvers nemanda og skila þeirri skráningu einu sinni í viku til
kórstjóra, sem skráir hana jafnóðum niður í kerfi skólans. Mælst er til þess að nemandi sé
viðstaddur alla kennslustundina. Fari svo að nemandi þurfi að hverfa frá fyrr ber honum að láta
raddstjóra sinnar raddar vita. Raunmæting niður fyrir 70% undir lok áfanga jafngildir falli. Ef
raunmæting nemanda er komin niður fyrir 60% þegar komið er að viðburði eða æfingabúðum er
kórstjóra heimilt að meina honum þátttöku. Ef nemandi sýnir af sér ósæmilega hegðun sem kemur
í veg fyrir vinnufrið áfangans er kórstjóra, í samráði við raddstjóra og áfangastjóra, heimilt að
meina nemanda áframhaldandi þátttöku í áfanganum. Nemandi hefur þá þegar fengið skriflega
áminningu um ósæmilega hegðun.

Kennslustundafjöldi:

Tvær tveggja klukkustunda kennslustundir á viku. Að auki gætu viðburðir
innihaldið aukaæfingar sem eru ígildi hálfrar æfingar á hefðbundnum tíma. Á prófatíma eru að
auki skipulagðar fáeinar aukaæfingar fyrir útskift.

Skilyrði:

Inntökupróf í upphafi áfanga hafi nemandi ekki lokið áfanganum Kórsöngur að hausti. Allir
nemendur sem lokið hafa áfanganum Kórsöngur að vori fara sjálkrafa á haustönn í Kórsöngur að
hausti.