Stutt lýsing: Unnið er með alla færniþættina fjóra, tal, hlustun, lesskilning og ritun. Lagt er lokahönd á málfræðina í þessum áfanga, þ.e.a.s. fortíð, viðtengingarhátt og skilyrðissetningar. Einnig er unnið með þemu tengd bókmenntum, kvikmyndum, auk sögu og menningu landsins.
Námsmat: Ekkert lokapróf er í áfanganum, en nemendur vinna verkefni jafnt og þétt yfir önnina. Tvö gagnapróf eru á önninni. Jafnhliða því að vinna í kennslubókinni eru verkefnin af ýmsum toga, þ.á m. stutt smásaga.
Verkefni yfir önnina 40%
Lokaverkefni 40%
Munnlegt próf 20%
Einingar: 5