ÍTAL1AA05 - Ítalska 1. Byrjunaráfangi í ítölsku

Stutt lýsing á áfanganum:

Ætlað byrjendum sem ekki hafa neina kunnáttu í tungumálinu. Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í framburði og lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á  að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu Ítalíu.

Námsmat:

Annareinkunn gildir 50% á móti lokaprófi sem gildir 50%. Inn í annareinkunn reiknast ýmis verkefni, gagnapróf og munnleg próf sem tekin eru jafnt og þétt yfir önnina.