Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verður farið yfir undirstöður máls og tals, hvað telst hefðbundin máltaka og hvernig hefðbundin máltaka gengur fyrir sig. Einnig verður skoðað hvað getur farið úrskeiðis í máltöku, hvernig hægt er að meta málþroska og hvernig hægt er að vinna með börnum til að efla málþroska. Unnið verður með hljóðfræði, orðaforða, málfræði og setningafræði. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér fagleg vinnubrögð sem tíðkast í talmeinafræði.
Námsmat:
Gert er ráð fyrir mikilli virkni nemenda í kennslustundum og byggist námsmat á henni og verkefnavinnu af ýmsu tagi.
Nokkur lykilhugtök áfangans:
Málþroski, tal, mál, frávik, málþroskapróf, framburðarpróf, þjálfun, greining, stam, framburður, hljóðkerfisvitund.