ÍSLE2BÚ05 - Íslenskar draugasögur
Áfanginn er kjörgreinaráfangi og valáfangi á 2. þrepi.
Stutt lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verða lesnar íslenskar draugasögur frá ýmsum tímum, rýnt í sérstöðu þeirra og hvað þær eiga sameiginlegt. Leitast verður við að skoða hvers konar draugasögur hafa verið lífseigastar og hvers vegna.
Í áfanganum verður fjallað um þróun draugasagna og gildi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Skoðað verður hvað þær geta kennt okkur um trú og viðhorf fólks á mismunandi tímum og einnig hvað það er sem skilgreinir draugagang. Hver er munurinn á afturgöngum, uppvakningum og fylgjum?
Spurningum verður velt upp um hvort draugatrú lifi enn góðu lífi í samfélaginu og þá hvernig.
Lesnar verða klassískar íslenskar draugasögur ásamt sögnum sem eru nær okkur í tíma. Farið verður í miðbæ Reykjavíkur og skoðaðir staðir sem geyma drungalegar draugasögur.
Námsmat:
Námsmat verður byggt á ýmsum verkefnum, bæði skriflegum og munnlegum. Gerð er krafa um virkni nemenda.