FRAN1AA05 - Byrjunaráfangi í frönsku
																					                                                    
                        						
	
	
		
					
				Stutt lýsing á áfanganum:
Ætlað byrjendum sem ekki hafa neina kunnáttu í tungumálinu. Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. 
Námsmat:
Annareinkunn gildir 50% á móti lokaprófi sem gildir 50%. Inn í annareinkunn reiknast ýmis verkefni, hlutapróf, munnleg próf og hlustunarpróf sem tekin eru jafnt yfir önnina.