Stutt lýsing á áfanganum:
Siðfræði kemur öllum við því hún fæst við að svara spurningum eins og: Hvernig á ég að haga lífi mínu? Hvernig leysum við deilur? Hvað hefur gildi? Hvað er rétt og hvað er rangt? Hvar endar ábyrgð mín?
Markmið áfangans er að ræða siðferðileg álitamál, læra gagnleg hugtök, efla skilning á ólíkum sjónarmiðum og setja samræðuna í samhengi við sögu hugmyndanna.
Farið verður í stefnur og strauma siðfræðinnar og lesin textabrot eftir merka hugsuði eins og Platón, Aristóteles, Hume, Mill, Kant og Sartre og sett í tengsl við samtímann og vandamál daglegs lífs.
Ef áhugi er fyrir hendi skipuleggur hópurinn siðfræðiráðstefnu.
Nokkur lykilhugtök áfangans:
Afstætt, algilt, rétt, rangt, ábyrgð, frelsi, eiginhagsmunir, kærleikur, hjálpsemi, tilgangur, dyggð, skylda, afleiðingar, lögmál, grundvöllur, heppni, samfélagssáttmáli.
Námsmat:
Stefnt er að dýnamískri umræðu, skapandi verkefnum, hlutverkaleik og notkun miðla eins og ljósmynda til að skapa skilning. Mæting, þátttaka, verkefni.