Norska og sænska

Norsku- og sænskukennsla fyrir framhaldsskólanemendur á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Í byrjun annar er stundatafla áfanganna auglýst á heimasíðu MH, inni á síðum fyrir norsku og sænsku . Þar má finna allar upplýsingar og einnig eru áfangalýsingar sýnilegar hér undir Námið, áfangalýsingar.

Hægt er að velja norsku eða sænsku í stað dönsku sem Norðurlandamál í framhaldsskóla ef nemandi kann norsku eða sænsku, þ.e. ef nemandi hefur lokið grunnskólaprófi í viðkomandi máli á Íslandi eða lokið grunnskóla annars staðar á Norðurlöndum.

Ekki er boðið upp á norsku- eða sænskukennslu fyrir byrjendur.

Nemendur sem skrá sig í norsku eða sænsku fara í matspróf (könnunarpróf) í fyrsta tíma, þar sem kunnátta þeirra er metin.

____________________

Nemendur sem mega læra norsku eða sænsku í staðinn fyrir skyldubundna dönskuáfanga, geta skráð sig sjálf hér á síðunni í ágúst, eftir að ljóst er í hvaða framhaldsskóla þau eru:  EYÐUBLAÐ SEM ER HÉR - opnast í ágúst  Skrifstofur framhaldsskólanna aðstoða einnig nemendur sína við skráninguna, eftir þörfum. Skráningu þarf að vera lokið fyrir lok dags 16. ágúst 2024.

ATH að þessi skráning er ekki fyrir grunnskólanemendur ( fyrr en þau eru komin inn í framahaldsskóla að hausti) eða útskrifaða framhaldsskólanemendur.

Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við áfangastjóra MH, afangastjori@mh.is.

Hér eru nánari upplýsingar um fyrsta kennsludag og stundatöflu í norsku og sænsku.

Síðast uppfært: 21. mars 2024