Fréttir og tilkynningar

IB nemar kynna rannsóknarverkefni í raungreinum

20.04.2026
Síðastliðinn föstudag héldu allir IB nemendur á fyrra ári til Þingvalla, þar sem þau fengu fræðslu um sögu og náttúru staðarins og unnu að þverfaglegu rannsóknarverkefni í litlum hópum. Hóparnir skoðuðu m.a. áhrif ferðamennsku á vatn og gróður svæðisins, sem og gæði ferðamannaaðstöðu á svæðinu. Niðurstöður verkefnanna voru svo kynntar á veggspjaldakynningu á Miðgarði nú í eftirmiðdaginn.

Gestafyrirlesari frá Japan í heimsókn

16.04.2026
Nemendur í japönsku í MH fengu góðan gest í heimsókn þegar þau fengu til sín gestafyrirlesara frá Tokyo University Research Institute, Yuki Tokunaga en hann er fræðimaður við stofnun iðnaðarvísinda við háskólann í Tokyo. Erindi hans kallaðist: "What is culture? Why culture matters? - Japanese Culture Through the Lens of Traditional Crafts". Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hér: https://hi.is/vidburdir/lifandi_hefdir_hvad_getum_vid_laert_af_aldagomlum_japonskum_fjolskyldufyrirtaekjum?fbclid=IwY2xjawRNgaVleHRuA2FlbQIxMQBicmlkETFTU2Zmb0NVRGMzb2JWdzE2c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHkB711jl9iFpT-fMgvChlpZkG5qK1qX9vmFjySOXzaQmzK7pgW20nG1mx_qX_aem_Jk4TsPSWh7HWMhe1xszVcA.

NHMH og Beneventumsjóður

15.04.2026
Í tilefni þess að Menntaskólinn við Hamrahlíð verður 60 ára næsta haust hefur afmælisins minnst með ýmsum hætti og umfangsmikil afmælisdagskrá verður laugardaginn 26. september. Takið þann dag endilega frá. Nemenda- og hollvinasamtökin NHMH og Beneventumsjóður freista þess að styðja skólann á afmælisárinu. Það gerist bæði með þátttöku í undirbúningi afmælisins og fjárhagslegum stuðningi í gegnum Beneventumsjóðinn. Meðal annarra verkefna er stuðningur við innra starf skólans sem og skipulag og fegrun lóðar og umhverfis skólans þar sem komið verður fyrir listaverkum í eigu hans.

Tónleikaferð kórs MH um Norðurland

14.04.2026
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð leggur upp í langferð föstudaginn 17. apríl kl. 8:30. Ferðinni er heitið norður í land. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. 

Sigrún Ásta keppir fyrir hönd MH í Söngkeppni framhaldsskólanna

08.04.2026
Laugardaginn 11. apríl nk. verða úrslit Söngkeppni framhaldsskólanna sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin hefst klukkan 20:45 og verður fulltrúi MH Sigrún Ásta Magnúsdóttir. Sigrún Ásta er með númerið 900-9119 og hvetjum við öll til að kjósa með hjartanu. Við óskum Sigrúnu Ástu góðs gengis á laugardaginn.

Rekstrarstjóri í Sómalíu

27.03.2026
Ellý okkar sem hefur starfað í matsölu nemenda í yfir 20 ár er að kveðja og þess vegna auglýsir NFMH eftir rekstrarstjóra í Sómalíu. Auglýsinguna má finna á starfatorgi. Vonandi er önnur "Ellý" þarna úti handa okkur. Þetta er ótrúlega skemmtilegt starf.

Páskafrí

27.03.2026
Í dag var síðasti kennsludagur fyrir páska og nemendur og starfsfólk er farið í páskafrí. Við mætum öll hress og kát aftur miðvikudaginn 8. apríl. Gleðilega páska

Fylgdu okkur á Instagram @menntaskolinn_hamrahlid