Fréttir og tilkynningar

Staðfestingardagur og prófsýning

17.05.2024
Upplýsingar um hvar kennarar eru á staðfestingardegi og í prófsýningu

Útskriftarmyndir

14.05.2024
Útskrifaðist þú frá MH? Það er gaman að segja frá því að margar útskriftarmyndir frá árinu 1973 til dagsins í dag eru komnar á heimasíðuna. Ekki er búið að klára verkefnið en þeirri vinnu ætti að ljúka fljótlega.

Síðasti prófdagur

14.05.2024
Í dag, þriðjudag, er síðasti prófdagur skv. próftöflunni og eru það sálfræði og danska sem eiga síðasta orðið. Á morgun og fimmtudaginn eru nokkrir að taka sjúkrapróf og þá er ekkert annað eftir en að bíða eftir einkunnum. Ef einhverjar einkunnir sjást í Innu, fyrir próf sem tekin voru á prófatíma þá teljast þær vinnueinkunnir og geta breyst. Einkunn telst ekki fullkomin fyrr en við höfum tilkynnt að svo sé. Áætlað er að einkunnir birtist eftir kl. 16:00 föstudaginn 18. maí. Gangi ykkur vel á lokametrunum.

Próf

26.04.2024
Lokaprófin hefjast mánudaginn 29. apríl skv. próftöflu. Nemendur sjá sína eigin próftöflu í Innu og þar kemur líka fram klukkan hvað prófin byrja. Nemendur sem hafa sótt um að breyta prófi þurfa að athuga að próftaflan í Innu hefur ekki breyst og allar upplýsingar um breyttan próftíma er í tölvupósti til hvers og eins frá prófstjóra. Passið vel upp á að skoða þetta vel svo þið missið ekki af prófi. Allir nemendur fengu tölvupóst frá prófstjóra og námsráðgjöfum þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi próftökur í MH. Þar er einnig hlekkur á staðsetningu prófa sem einnig verður sett á upplýsingaskjáina í skólanum. Gangi ykkur sem best og munið að huga vel að hreyfingu, næringu og svefni á meðan á prófatímabili stendur.

Hæfileikar í lok vetrar

24.04.2024
Í kvöld, síðasta vetrardag, héldu nemendur á fjölnámsbraut í MH, stórglæsilega hæfileikakeppni fyrir starfsbrautir framhaldsskólanna. MH vann keppnina 2023 og var því gestgjafinn í ár. 8 skólar voru með atriði sem voru af ýmsum toga og sýndu nemendur mikla og fjölbreytta hæfileika. Einvalalið var í dómnefnd og fóru leikar þannig að Fjölbrautaskólinn í Garðabæ sigraði, MH varð í öðru sæti og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði í því þriðja. Við óskum öllum sem tóku þátt innilega til hamingju og takk fyrir glæsilegt kvöld. Gaman að enda veturinn á þennan hátt. Gleðilegt sumar.

Plokkað í MH

22.04.2024
Starfsfólk og nemendur fóru út í góða veðrið í hádeginu í dag og tíndu rusl af lóð skólans. MH hefur tekið þátt í Stóra plokkdeginum undanfarin ár en það er liður í aðgerðum fræðsluáætlunar í umhverfismálum. Vorveðrið lagðist á sveif með duglegum MH-ingum og sá til þess að öll gátum við notið útiverunnar og unnið þarft verk í leiðinni.

IB-nemendur á Þingvöllum

21.04.2024
Nemendur á fyrra árinu í IB fóru á Þingvelli með kennurum sínum í efnafræði, eðlisfræði og líffræði og unnu þverfaglegt verkefni á fallegum degi í fallegri náttúru. Í ferðinni voru nemendur að velta fyrir sér loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á vistkerfi Þingvalla. T.d. voru þau að skoða lífríkis Þingvallavatns, mengun á svæðinu, ferðaþjónustu í héraðinu, jarðvarmavirkjunar í kringum svæðið, náttúrvernd og ýmislegt fleira. Verkefnið kallast CSP (Collaborative sciense project) og munu nemendur kynna niðurstöður sínar á Miðgarði 23. apríl milli 16:00 og 17:00. Markmiðið er að allir nemendur árgangsins vinni saman að því að skoða "Global issue in local context". Markmið skv. fyrirmælum IB er að hafa ALLA nemendur árgangsins að vinna saman til að skoða "Global issue in local context". Nemendur áttu að velja sér rannsóknarspurningu í þessu samhengi og vinna saman í litlum hópum.