Plokkað í MH

Nemendur MH tíndu rusl af skólalóðinni í dag
Nemendur MH tíndu rusl af skólalóðinni í dag

Starfsfólk og nemendur fóru út í góða veðrið í hádeginu í dag og tíndu rusl af lóð skólans. MH hefur tekið þátt í Stóra plokkdeginum undanfarin ár en það er liður í aðgerðum fræðsluáætlunar í umhverfismálum. Vorveðrið lagðist á sveif með duglegum MH-ingum og sá til þess að öll gátum við notið útiverunnar og unnið þarft verk í leiðinni.