Afreksíþróttaval

Íþróttagreinin sem viðkomandi nemandi stundar þarf að vera viðurkennd af Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) og nemandinn þarf að stunda æfingar og keppni með íþróttafélagi sem er aðili að sérsambandi innan ÍSÍ.

Með umsókninni óskar nemandi eftir að afreksíþróttir séu metnar til eininga í stað líkamsræktaráfanga og frjáls vals á námsbraut. 

Með umsókn þarf að fylgja meðmælabréf frá þjálfara sem hægt er að senda með tölvupósti á líkamsræktarkennara í MH á netfangið: sonja@mh.is eða hengja við umsókn (sjá neðst).

Þegar samningi hefur verið skilað mun fagstjóri í líkamsrækt vera í sambandi við þjálfara.

  • Skólinn áskilur sér rétt til að hafa samband við þjálfara (eða íþróttafélag) til að fá staðfestingu á æfingasókn.
  • Til að fá einingu/ar fyrir íþróttaiðkun þarf nemandi að vera með a.m.k. 95% æfingasókn hjá íþróttafélaginu, á viðkomandi önn. Þjálfari þarf að staðfesta æfingasókn í lok annar.
  • Samhliða íþróttaiðkun er nemandi skyldugur að mæta/horfa á fræðsluerindi í MH sem styrkja viðkomandi á sviði afreksíþrótta. 
Það fyrsta sem þarf að gera:

Áður er sótt er um þarf nemandi að hafa rætt við námstjóra eða áfangastjóra.