    <language>is</language>
Fréttir | Menntaskólinn við Hamrahlíð
MH-60 ára
Laugardaginn 26. september verður mikil hátíð í MH þegar skólinn fagnar 60 ára afmæli. Nemenda- og hollvinasamtök MH hafa stofnað afmælisviðburð sem við hvetjum alla MH-inga til að skrá sig á. Dagskráin er að mótast og má lesa meira um hana á afmælissíðunni.]]></description>
29 verk bárust í tónverkakeppnina
Afmælisnefnd MH, í samvinnu við Beneventumsjóð, stendur fyrir samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur gátu valið úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverkanna rann út 14. ágúst og ótrúlegt en satt þá bárust 29 verk í keppnina. Nú bíður dómnefndar að njóta þess að fara yfir öll innsendu verkin og úrslit verða tilkynnt laugardaginn 26. september á afmælishátíð skólans. Takk kærlega fyrir frábærar undirtektir tónskáld!]]></description>
Listdansarar í Dublin
MH-ingar á listdansbraut og jafnframt í framhaldsdeild Listdansskóla Íslands tóku þátt á heimsmeistaramóti í dansi (Dance World Cup) í júli í Dublin.
Þau voru í hópi 11.500 dansara frá alls 60 löndum og hrepptu silfur í Ballett Large Group Senior, silfur í Solo Showstopper Senior, brons í Jazz Small Group, brons í Lyrical duett Senior, 6. sæti í Solo Ballett Repertoire Junior, 10. sæti í Lyrical Large Group Senior og 15. sæti í Solo jazz Junior.
Einnig fengu tveir dansarar Golden Ticket fyrir sólóin sín í Ballett og Showstopper sem er sérstök viðurkenning dómara sem er veitt aukalega fyrir aðgöngu í Masterclasses á Spáni. Á myndunum eru Iðunn (nýstúdent), Indiana, Lísa, María, Rita (nýstúdent vor 2026) og Þorkatla ásamt öðrum dönsurum, skólastjóra og kennara úr LÍ. Dansarnir kepptu í mismunandi mörgum flokkum, sum í einum og önnur í 4-5.]]></description>
Gulir skápar
Í skólanum eru 200 gulir skápar sem nemendur geta leigt lykil að. Umsókn um gulan skáp fer fram á heimasíðunni og er hlekkur undir Gagnlegt efni.]]></description>
Nýnemadagur mánudaginn 17. ágúst
Nýnemakynningin fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 13:00–15:00. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast skólanum, hitta umsjónarkennarann sinn og fá mikilvægar upplýsingar um fyrstu dagana í MH]]></description>
Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda
Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda.  Öll sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga. Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir eldri nemenda um töflubreytingar í Innu, en opið verður fyrir þær umsóknir til og með sunnudeginum 16. ágúst. ]]></description>
Stundatöflum seinkar
Vinna við stundatöflugerð hefur tafist og þurfum við meiri tíma til að klára töflurnar. Stefnt er að því að birta þær fyrir föstudaginn.]]></description>
Inna lokuð fram í næstu viku
Nú er skólinn að vinna í stundatöflum nemenda og því hefur Innu verið lokað um stundarsakir. Stefnt er að því að opna hana aftur eftir kl. 16 miðvikudaginn 12. ágúst. Þá munu þau sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga.]]></description>
Bronsverðlaun í efnafræði
Fannar Smári Jóhannsson, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í vor, hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í efnafræði sem haldnir voru í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, í vikunni. Fannar Smári vann sér inn keppnisrétt með því að verða í öðru sæti í úrslitakeppninni í Efnafræði sem haldin var í vor. Þar var hann jafnframt efstur í verklega hluta keppninnar. Fréttin er fengin af mbl.is
Skv. heimildum hafa Íslendingar fengið bronsið nokkrum sinnum t.d. 2023, 2018, 2015, 2011, 2010 og 2008 https://icho-official.org/results/country_info.php?country=Iceland
Frönskuverðlaun
Móttaka var haldin í boði Alliance française og franska sendiráðsins sl. miðvikudag þar sem verðlaunahöfum í frönsku voru veittar viðurkenningar. Karólína Thoroddsen nýstúdent, var verðlaunahafi MH og óskum við henni innilega til hamingju. Félicitations!]]></description>
Umsóknir og biðlisti
Alls sóttu rétt tæplega 800 nýútskrifaðir 10. bekkingar um skólavist í MH fyrir næsta haust, þar af 342 með MH í fyrsta vali. Af þessum fjölda gátum við tekið inn 280 nýnema en svigrúm til að taka við fleirum er því miður nánast ekkert. Við viljum þó hvetja alla umsækjendur sem eru á leið í aðra skóla næsta haust, að nálgast það verkefni með jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Það leynast mörg frábær tækifæri víðar en í MH.]]></description>
Nýr konrektor MH
Guðmundur Arnlaugsson hefur verið ráðinn konrektor MH. Hann hefur gegnt starfinu síðan i febrúar 2025 í afleysingu en áður var hann IB-stallari. Við erum mjög ánægð með að fá að njóta krafta hans áfram á næstu árum.]]></description>
Innritun nýnema
Í dag fengu grunnskólanemendur að vita í hvaða framhaldssskóla þeir munu hefja nám haustið 2026. Tæplega 800 nemendur sóttu um MH í fyrsta, öðru eða þriðja vali og því augljóst að ekki er hægt að verða við óskum allra. Þau sem ekki komust inn, en uppfylla inntökuskilyrðin, geta sótt um í nóvember ef þau vilja enn koma í MH. Reyndin er samt sú að allir skólar taka vel á móti nemendum sínum og þess verður ekki langt að bíða að sá skóli, sem nemendur innritast í, verður besti skólinn.
Við innrituðum rúmlega 300 nýja MH-inga og næstu daga verður valið á þá í samræmi við braut og upplýsingar sem komu fram í umsókninni. Bréf mun fara út á alla nýja nemendur mánudaginn 22. júní með öllum upplýsingum um skólagjöld og skólabyrjun í haust.
Velkomin í MH.]]></description>
Vegvísir
Úskriftarárgangur 1982 gaf skólanum listaverkið Vegvísi á 10 ára útskriftarafmæli sínu árið 1992. Listaverkið er tileinkað þáverandi húsverði skólans, Jóhanni Hjálmarssyni, og er verkið eftir Þóri Barðdal. Listaverkinu var upprunalega fundinn staður á meðal lágvaxinna planta á vesturlóð skólans. Síðan eru liðin mörg ár og verkið hefur smá saman týnst inn í skóginn sem þar vex. Í tilefni af 60 ára afmæli skólans í haust, ákvað fyrrnefndur árgangur að láta hreinsa listaverkið og finna því betri stað.]]></description>
Sumartiltekt í MH
Þá líður senn að lokum vorannar 2026 í MH og starfsfólk að ljúka tiltekt eftir veturinn. Tiltektin hefur leitt ýmislegt skemmtilegt í ljós og ýmis djásn frá nemendum fundist. Þessi metnaðarfullu verkefni eru dæmi um hugmyndaauðgi nemenda skólans í söguáföngum á liðnum árum.]]></description>
Til hamingju með daginn
Í dag voru brautskráðir 127 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af 8 námsbrautum. Dúx skólans var Sóley Júka Magnúsd. Kuwahara , stúdent af náttúrufræðibraut með 9,88 í meðaleinkunn. Semidúx var Lilja Rut Halldórsdóttir stúdent af Náttúrufræðibraut með 9,83 í meðaleinkunn. Gaman að segja frá því að kór skólans, undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar, frumflutti verk eftir föður hennar í tilefni dagsins. Mikið var um annan tónlistarflutning sem nýstúdentar sáu um ásamt kór skólans. Fyrir hönd nýstúdenta fluttu Dýrleif Kristín Flókadóttir og Illugi Vilhelmsson ræðu, Chadman Ian Naimi lék á píanó, Svanhildur Júlía Alexandersdóttir nýstúdent lék eigið lag á þverflautu og söng, ásamt Bjarka Steini Bjarti Jónssyni sem lék á píanó og kór nýstúdenta flutti verkið Lindin eftir Hreiðar Inga. Ótrúlegir hæfileikar fylltu salinn af fallegum tónum. Til hamingju með daginn og gleðilegt sumar.]]></description>
Útskrift í dag
Í dag, 29. maí útskrifast 127 MH-ingar frá MH. Flestir útskrifast af opinni braut eða 57, 24 af IB braut, 20 af náttúrufræðibraut, 8 af félagsfræðabraut, 5 af málabraut, 7 af listdansbraut, 4 af listmenntabraut og 2 af fjölnámsbraut. Athöfnin hefst kl. 13:00 og mæta útskriftarefnin kl. 12:40. Á meðan beðið er eftir að athöfnin hefjist munu þær Þórhildur Vala Sigurðardóttir, Ástrós Eva Einarsdóttir og Ragnheiður Helga Víkingsdóttir leika á víólu, selló og píanó. Njótið stundarinnar.
Skrifstofan verður lokuð eftir hádegi.]]></description>
Helga skipuð rektor MH
Í gær skipaði Inga Sæland Helgu Jóhannsdóttur sem rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga hefur verið settur rektor síðan Steinn Jóhannsson fór í leyfi fyrir rúmu ári síðan. Við þökkum Steini kærlega fyrir hans störf í MH og vitum, af reynslunni, að það er gott að leita til fyrri rektora um ráð. Sjá frétt á vef stjórnarráðsins.
Guðmundur Arnlaugsson hefur leyst Helgu af sem konrektor þetta rúma ár og Alda Kravec hefur leyst hann af sem IB-stallari, bæði við góðan orðstír]]></description>
Próflok, sýnidagur prófa og staðfestingardagur
Nú er prófum lokið hjá langflestum MH-ingum og kennarar sitja sveittir við að ganga frá einkunnum.  Opnað verður fyrir einkunnir í Innu miðvikudaginn 20. maí kl. 16.00.  ]]></description>
Eden valin í Ólympíulið Íslands í líffræði
MH-ingurinn Eden Mayim Gittler tók þátt í Landskeppni í líffræði ásamt 184 öðrum á dögunum. Eden stóð sig hins vegar svo vel að hún hefur verið valin í ólympíulið Íslands og mun taka þátt í Ólympíuleikunum í líffræði í Vilníus í sumar ásamt þremur öðrum! Vel gert segjum við og til hamingju Eden ]]></description>