    <language>is</language>
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Borgarstjórinn í Tama
Japönskunemendur í MH fengu góða gesti í heimsókn í dag þegar borgarstjóri Tama í Japan, ásamt fríðu föruneyti, kíkti í kennslustund til þeirra. Gestirnir voru mjög forvitnir um íslenska skólakerfið og íslenska nemendur.]]></description>
Bleika slaufan
Það er gaman að segja frá því að annar hönnuður bleiku slaufunnar í ár er MH-ingurinn Tanja Levý. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Baráttukveðjur frá MH og við hvetjum ykkur öll til að kaupa bleiku slaufuna.
Heimsókn frá Hiroshima
Frægðar- og mikilmenni margskonar hafa komið í MH. Ekkert þeirra hefur þó haft jafnmikil áhrif á nemendur eins og hin 89 ára Teruko Yahata sem hélt áhorfendum hugföngnum þegar hún sagði frá einstakri reynslu sinni síðastliðinn miðvikudag. ]]></description>
Draugasögur á Grund
Nemendur í áfanganum íslenskar draugasögur, ÍSLE2BÚ05, fóru í heimsókn á elliheimilið Grund á dögunum, ásamt kennara sínum Elvu Brá. Þau lásu frumsamdar og einnig gamlar draugasögur fyrir heimilisfólkið. Einnig sögðu þau frá atburðum úr samtímanum sem komu frá þeim sjálfum eða voru sögusagnir. Heimsóknin vakti mikla lukku heimilisfólksins og fengu nemendur safa og nammi í verðlaun.]]></description>
Samstöðufundur í MH
Nemendur í MH boðuðu til samstöðufundar til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og að þau væru ekki ein. Fundurinn hófst kl. 11 með því að nemendur gengu út úr tímum og söfnuðust saman á lóð skólans. Þar höfðu nemendur skipulagt ræðuhöld og ljóðalestur og einnig var farið með brot úr einleiknum "Orð gegn orði". Mikill samhugur var í loftinu og tókst fundurinn mjög vel og sýndu nemendur að þau hafa sterka rödd sem þau vilja að heyrist. Skólanum var afhentur kröfulisti þar sem meðal annars var óskað eftir skýrara verklagi, meira öryggi, gagnsæi og fræðslu.]]></description>
Sendiherra Indlands í heimsókn
Nemendur í enskuáföngunum ENSK2BB05 og ENSK2AB10 eru þessa dagana að lesa bók sem heitir Q&A eftir indverska höfundinn Vikas Swarup. Sagan gerist á Indlandi og veitir nemendum áhugaverða innsýn í menningu sem er töluvert frábrugðin þeirri sem við þekkjum hér á Íslandi. Til að undirbúa nemendur fyrir lesturinn, fengum við góða heimsókn frá indverska sendiráðinu síðastliðinn föstudag, 2. október. Markmiðið með heimsókninni var að gefa nemendum tækifæri til að spyrja ígrundaðra spurninga um bókina, indverska menningu og annað sem hefur vakið forvitni þeirra við lesturinn. Það vildi svo skemmtilega til að heimsóknin var einmitt á afmælisdegi Gandhi svo nemendur fengu einnig fyrirlestur um ævi og störf þess merka manns. Við þökkum sendiherra Indlands á Íslandi, Hr. Shri R. Ravindra, og samstarfsfólki hans, Anisha Tomar og Akash Chahar, kærlega fyrir komuna og fyrir einstaklega fræðandi fyrirlestra og samtal.]]></description>
Úrslit í tónverkakeppninni
Úrslit í tónverkakeppni Menntaskólans við Hamrahlíð og Beneventumsjóðs liggja fyrir og voru tilkynnt á afmælishátíð skólans laugardaginn 26. september. Sigurvegari keppninnar er Björn Önundur Arnarson fyrir tónverkið Gunnhildur við samnefnt ljóð MH-ingsins Hallgríms Helgasonar. Við óskum Birni Önundi innilega til hamingju og erum spennt að hlýða á kór Menntaskólans við Hamrahlíð frumflytja verkið í nóvember.]]></description>
Takk fyrir komuna
Takk, kæru MH-ingar og aðrir gestir, fyrir komuna í 60 ára afmæli MH á laugardaginn. Það eru forréttindi að fá að taka á móti ykkur öllum og við getum ekki hætt að brosa. Dagskráin sem MH-ingar fyrr og ný buðu okkur upp á var í alla staði frábær og mjög vel sótt. Húsfyllir var af glöðum MH-ingum sem þyrsti í að hitta aðra MH-inga og var mikið um fagnaðarfundi. Takk öll sem komuð fram og gáfuð okkur stórkostlega upplifun á öllum sviðum listarinnar allan daginn. Takk kærlega fyrir frábæran dag.]]></description>
Streymi á afmælisdagskrá
Hér má nálgast streymi á frábæra afmælisdagskrá í tilefni 60 ára afmælis MH.]]></description>
MH 60 ára
Í dag, 24. september, eru 60 ár liðin frá því Menntaskólinn við Hamrahlíð var settur í fyrsta skipti af Guðmundi Arnlaugssyni, þáverandi rektor. Af því tilefni verður blásið til afmælisveislu á laugardaginn hér í MH. Húsið verður opnað kl. 10:00 og stendur dagskráin fram eftir kvöldi. Dagskrána í heild sinni má finna hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum tengdum MH.
Við erum mjög spennt að taka á móti öllum.]]></description>
Japanskir nemendur heimsóttu MH
Við fengum góða gesti í liðinni viku, en hingað komu alls 58 nemendur og 6 kennarar frá Otemon Gakuin High School í Osaka.]]></description>
60 ára afmælið okkar
Það styttist í afmælið okkar sem við ætlum að halda upp á laugardaginn 26. september frá kl. 10 - 23. Dagskráin er aldeilis glæsileg þar sem mikill fjöldi MH-inga er að gefa vinnu sína og koma fram á hinum ýmsu sviðum allan daginn. Dagskránna í heild sinni má sjá hér á síðunni. Endilega skoðið hana vel og takið daginn frá. ]]></description>
Nýnemaball
Fyrsta ball skólaársins verður í dag, miðvikudaginn 16. september í Gamla Bíó. Húsið opnar klukkan 22:00, því lokar 23:00 og ballinu lýkur kl. 01:00. Athugið að það er venjulegur skóladagur á morgun og kennsla hefst kl. 8:20 skv. stundaskrá eins og venjulega. Góða skemmtun.]]></description>
Afreksnemar úr MH fengu styrk úr afreks- og hvatningasjóði HÍ
Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær.
MH-60 ára
Laugardaginn 26. september verður mikil hátíð í MH þegar skólinn fagnar 60 ára afmæli. Nemenda- og hollvinasamtök MH hafa stofnað afmælisviðburð sem við hvetjum alla MH-inga til að skrá sig á. Dagskráin er að mótast og má lesa meira um hana á afmælissíðunni.]]></description>
29 verk bárust í tónverkakeppnina
Afmælisnefnd MH, í samvinnu við Beneventumsjóð, stendur fyrir samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur gátu valið úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverkanna rann út 14. ágúst og ótrúlegt en satt þá bárust 29 verk í keppnina. Nú bíður dómnefndar að njóta þess að fara yfir öll innsendu verkin og úrslit verða tilkynnt laugardaginn 26. september á afmælishátíð skólans. Takk kærlega fyrir frábærar undirtektir tónskáld!]]></description>
Listdansarar í Dublin
MH-ingar á listdansbraut og jafnframt í framhaldsdeild Listdansskóla Íslands tóku þátt á heimsmeistaramóti í dansi (Dance World Cup) í júli í Dublin.
Þau voru í hópi 11.500 dansara frá alls 60 löndum og hrepptu silfur í Ballett Large Group Senior, silfur í Solo Showstopper Senior, brons í Jazz Small Group, brons í Lyrical duett Senior, 6. sæti í Solo Ballett Repertoire Junior, 10. sæti í Lyrical Large Group Senior og 15. sæti í Solo jazz Junior.
Einnig fengu tveir dansarar Golden Ticket fyrir sólóin sín í Ballett og Showstopper sem er sérstök viðurkenning dómara sem er veitt aukalega fyrir aðgöngu í Masterclasses á Spáni. Á myndunum eru Iðunn (nýstúdent), Indiana, Lísa, María, Rita (nýstúdent vor 2026) og Þorkatla ásamt öðrum dönsurum, skólastjóra og kennara úr LÍ. Dansarnir kepptu í mismunandi mörgum flokkum, sum í einum og önnur í 4-5.]]></description>
Gulir skápar
Í skólanum eru 200 gulir skápar sem nemendur geta leigt lykil að. Umsókn um gulan skáp fer fram á heimasíðunni og er hlekkur undir Gagnlegt efni.]]></description>
Nýnemadagur mánudaginn 17. ágúst
Nýnemakynningin fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 13:00–15:00. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast skólanum, hitta umsjónarkennarann sinn og fá mikilvægar upplýsingar um fyrstu dagana í MH]]></description>
Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda
Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda.  Öll sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga. Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir eldri nemenda um töflubreytingar í Innu, en opið verður fyrir þær umsóknir til og með sunnudeginum 16. ágúst. ]]></description>