Forsíða

Menntaskóli

Velkomin(n) á heimasíðu MH

Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966. Markmið skólans er velgengni brautskráðra nemenda og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu, góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir.

Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:30 - 11:50 og 12:20 - 15:30 virka daga.

Fréttir

Staðfestingardagur 21. maí!

Helstu tímasetningar frá prófalokum til útskriftar
18. maí, föstudagur kl. 16:00:
  • Einkunnabirting í Innu bæði fyrir dag og öld. Opnað fyrir staðfestingu vals hjá dagskóla.
21. maí, mánudagur:
  • Viðtalstími valkennara kl. 9 – 11.
  • Prófasýning dag og öld kl. 11:15-12:15.
  • Staðfestingu vals lýkur kl. 14:00.
.ALLIR NEMENDUR VERÐA AÐ STAÐ FESTA VALIÐ SITT
Öllum nemendum skólans er skylt að staðfesta val sitt fyrir næstu önn ætli þeir sér að stunda nám í skólanum þá. Þeir sem ekki staðfesta val og /eða greiða ekki skólagjöld eiga ekki vísa skólavist á haustönn 2012. Þegar búið er að birta einkunnir í Innu 18. maí, hafa nemendur tíma fram til kl. 14:00 þann 21. maí til að staðfesta valið. Ef nemendur þurfa aðstoð við að breyta valinu gera þeir það með valkennara milli klukkan 9 og 11 þann 21. maí.

BREYTINGAR Á VALI

Ef gera þarf breytingar á vali eru forsendur fyrir breytingum eftirfarandi:
  1. Fall í áfanga.
  2. Áfangi fellur út vegna þess að hann er ekki lengur í boði. Fyrsta varaval var sett inn í stað áfanga sem féllu niður, vegna ónógrar þátttöku.
  3. Synjun P-umsóknar.
  4. Ný hraðferðarheimild.
  5. Nemandi fær ekki hraðferðareinkunn í grein þar sem hann hefur gert ráð fyrir hraðferð, fær t.d. einkunn 7 í ÍSL103 en hefur valið ÍSL2034. Þá skal hann breyta vali.
  6. Nemandi óskar að fækka tímum í töflu með því að taka burt áfanga án þess að annar komi í staðinn.
Áfangar sem féllu út:
BRI1012,FÉL2236,ÍSL3L36,ÍSL3M36,ÍSK4236,JAP3036,LEI2S36,SAG2M36,SAG2Þ36,SÁL4036, STÆ3424,STÆ3636.UPP1036,ÞJÓ1436,ÞJÓ1636,ÞJÓ2636,ÞJÓ3636



Aldarafmælis dr. Róberts A. Ottóssonar minnst 17. maí kl. 20:00 í MH

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn minnast dr. Róberts A. Ottóssonar með dagskrá í hátíðarsal MH á uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí kl. 20, en þann dag er öld liðin frá fæðingu Róberts. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.  Lesa meira

Aldarafmælis dr. Róberts A. Ottóssonar minnst 17. maí kl. 20:00 í MH

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn minnast dr. Róberts A. Ottóssonar með dagskrá í hátíðarsal MH á uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí kl. 20, en þann dag er öld liðin frá fæðingu Róberts. Hann fæddist í Berlín og stundaði þar tónlistarnám en flýði hingað til lands undan nasismanum árið 1935.

Róbert var meðal merkustu tónlistarmanna landsins og starfaði á ýmsum vettvangi, meðal annars sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Söngsveitarinnar Fílharmóníu, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og kennari við Háskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík. Þá var hann fyrsti Íslendingurinn til að ljúka doktorsprófi í tónvísindum með ritgerð sinni um Þorlákstíðir.

Hamrahlíðarkórarnir syngja undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, sem var nemandi Róberts, útsetningar hans á íslenskum og erlendum lögum, meðal annars raddsetningar sem hann gerði sérstaklega fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Einnig flytja kórarnir Miskunnarbæn fyrir kór og strengjasveit, sem er eitt fárra frumsamdra tónverka sem Róbert lét eftir sig. Þá mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur flytja erindi um líf og starf Róberts.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 


Próf eru hafin

Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn.

Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri er með viðtalstíma kl. 10 - 11 í st. 38.


headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf